Kortlagning beitilanda á Ísland
21.02.2019/Á undanförnum mánuðum hefur verið unnið að kortlagningu beitilanda á Íslandi undir formerkjum GróLindar. Sérstök áhersla var lögð á að draga fram svæði sem eru nýtt til beitar.
Markmið kortlagningarinnar er að fá heildarsýn yfir hvaða landsvæði eru nýtt til búfjárbeitar. Fyrst um sinn verður einkum horft á sumarbeit sauðfjár en beit annarra dýra verður tekin fyrir á seinni stigum verkefnisins. Kortalagninguna verður síðar hægt að tengja við ástandsmat GróLindar og mun þannig nýtast landnotendum, stjórnvöldum og öðrum við að skipuleggja landnotkun og hafa yfirsýn yfir ástand beitilanda.
Starfsfólk Landgræðslunnar hafa fengið mikla og góða aðstoð frá staðkunnugum bændum og öðrum landeigendum við þessa vinnu og er söfnun gagna langt komin. Samstarfið hefur gengið einstaklega vel og þakka starfsmenn Landgræðslunnar kærlega fyrir afar jákvæð viðbrögð frá þeim sem hafa verið beðnir um aðstoð við kortlagninguna.
Jóhann Helgi Stefánsson, johannhelgi@land.is, 866-7119
Sigríður Þorvaldsdóttir. sigridur.thorvaldsdottir@land.is, 856-0236
Iðunn Hauksdóttir. idunn.hauksdottir@land.is, 831-4748