
GróLind
Heildaryfirlit um stöðu gróður- og jarðvegsauðlinda
Þróa sjálfbærnivísa fyrir landnýtingu.
Bryndís Marteinsdóttir um GróLind
Heildaryfirlit um stöðu gróður- og jarðvegsauðlinda fæst með samþættingu á fyrirliggjandi gögnum, nýjum fjarkönnunargögnum, upplýsingaöflun í felti í samstarfi við almenning og neti af mælireitum. Vöktun GróLindar hófst sumarið 2019, en nokkur ár munu líða þar til að hægt er að fá heildarmat yfir auðlindirnar byggt á þeim gögnum. Árið 2020 gefur GróLind út kort sem sýnir stöðumat af ástandi auðlindanna og er unnið upp úr fyrirliggjandi gögnum.
Við þróun einfaldra vísa til að meta sjálfbærni landnýtingar er nauðsynlegt að hafa skilning á áhrifum mismunandi landnýtingar á uppbyggingu og virkni vistkerfa. Í verkefninu er stefnt að því að auka þennan skilning með vöktun á gróður- og jarðvegsauðlindum landsins, safna saman þeirri þekkingu sem þegar er til staðar og auka þekkingu okkar með rannsóknum. Þegar eru hafnar rannsóknir til að m.a. skoða beitaratferli sauðfjár í sumarhögum og fylgjast með því hvort gróður þróist með mismunandi hætti á beittu og friðuðu land.
Fréttir & tilkynningar
Ársskýrsla GróLindar 2021
Ársskýrsla GróLindar 202121.02.2021. Starfsfólk GróLindar hefur ritað ársskýrslu fyrir árið 2021, þar sem farið er yfir það sem var gert á árinu og...
Sumarið 2020
Sumarið 202009.10.2020. Í sumar, frá júní fram í september, voru 150 vöktunarreitir GróLindar lagðir út víðsvegar um landið. Í hverri viku voru að...
Landshlutakynningar
Landshlutakynningar 24.06.2020. Miðvikudaginn 24. júní og fimmtudaginn 25. Júní bjóða aðstandendur GróLindar upp á opna umræðufundi og frekari...
GróLind
Markmið
Markmið GróLindar er tvíþætt..
Vöktun og ástand gróðurs
Verið er að þróa aðferðafræði vöktunarinnar. Það..
Þróun sjálfbærnivísa
Verður fengið með samþættingu á..
Kortlagning úthaga
Kortavefsjá GróLindar



