Markmið GróLindar

 

Að skila með reglubundnum hætti heildarmati á ástandi gróður- og jarðvegsauðlinda landsins

Fyrra markmið verkefnisins snýr að mati og vöktun á ástandi gróður– og jarðvegsauðlinda landsins. Á árunum 2017-2019 var aðferðafræðin þróuð en vöktun í vöktunarreitum GróLindar hófst sumarið 2019. Skipulag hennar var unnið í samstarfi við aðrar stofnanir sem vakta náttúru Íslands, til að tryggja að verkefni skarist ekki og til að samræma mælingar svo unnt sé að samnýta niðurstöður.

Vöktunarkerfi þarf að vera skilvirkt og hagkvæmt, bæði m.t.t. beins kostnaðar og einnig þeirra upplýsinga sem það skilar. Útfærsla vöktunarinnar þarf að vera með þeim hætti að hún sé auðskiljanleg og jafnframt sveigjanleg þannig að hægt sé að laga hana að nýjustu tækni þegar svo ber undir, eins og t.a.m. notkun snjalltækja en einnig að nýjum áherslum og spurningum þegar líður á. Breytingar á vistkerfum og auðlindum verða á mismunandi kvörðum tíma og rúms, allt frá stórum kvörðum þar sem t.d. tegundabreytingar verða yfir í breytingar gróðursamfélaga eða landslags vegna landhnignunar eða rofs sem gerast á mun smærri landfræðilegum mælikvarða. Vöktun þarf að ná til þessara mismunandi kvarða svo gögn fáist um breytingar gróður- og jarðvegsauðlinda á sem víðustu sviði. Þar sem hér er verið að vakta mjög stór svæði er nauðsynlegt að flokka land í tiltölulega einsleitar einingar svo unnt sé að gera úrvinnslu gagna markvissari. Mælibreytur vöktunarinnar þurfa að gefa upplýsingar um ástand vistkerfa (þ.m.t. virkni þeirra) og álag á kerfin. Þær þurfa að vera mælanlegar, sannreynanlegar og samanburðarhæfar. Það síðastnefnda er mjög mikilvægt til að hægt sé að samtúlka niðurstöður mismunandi mælinga á mismunandi kvörðum.

Heildaryfirlit um stöðu gróður- og jarðvegsauðlinda verður fengið með samþættingu á fjarkönnunargögnum, upplýsingaöflun á jörðu niðri í samstarfi við hagaðila og neti af mælireitum. Eftirfarandi gögn verða notuð:

(a) gervitunglagögn

(b) kortlagning og loftmyndir af landslagsheildum

(c) nákvæmar loftmyndir teknar með flygildum (drónum)

(d) mæligögn fengin í vöktunarreitum.

Gögn sem nú þegar liggja fyrir eru jafnframt nýtt eins og kostur er. Með þessari nálgun í gagnasöfnun er tryggt að upplýsingar nýtist til að túlka niðurstöður á milli mismunandi kvarða og bæti þannig upplýsingagildi annarra gagna. Jafnframt býður þessi fjölbreytta nálgun í gagnaöflun upp á virkt samstarf við hagaðila, en með Landvöktun geta þeir tekið virkan þátt í gagnaöflun.

Aðferðafræði vöktunar í í stanslausri þróun. Það felur m.a. í sér að ákvarða mælibreytur sem endurspegla a.m.k. einn af eftirtöldum þáttum fyrir viðkomandi vistkerfi: Virkni, uppbyggingu, þanþol og viðnám. Einnig er hafin vinna við skipulag gagnavinnslu og gagnageymslu. Við langtímaverkefni er mikilvægt að tryggja að þau gögn sem safnast, séu geymd og skráð á öruggan hátt svo að þau séu aðgengileg og nothæf til framtíðar. Jafnframt þarf að tryggja að almenningur hafi greiðan aðgang að þessum upplýsingum. Eins og er er hægt að skoða einfaldar niðurstöður úr Vöktunarreitum og Landvöktunarreitum GróLindar á mælaborðinu.

Þróun sjálfbærnivísa fyrir nýtingu gróður- og jarðvegsauðlinda landsins

Annað af meginmarkmiðum GróLindar er að þróa sjálfbærnivísa fyrir landnýtingu. Við þróun einfaldra vísa til að meta sjálfbærni landnýtingar er nauðsynlegt að hafa skilning á áhrifum mismunandi landnýtingar á uppbyggingu og virkni vistkerfa. Í verkefninu er stefnt að því að auka þennan skilning með því að;

1) vakta gróður- og jarðvegsauðlindir

2) safna saman þeirri þekkingu sem þegar er til staðar

3) auka þekkingu með rannsóknum.

Þegar eru hafnar rannsóknir til að m.a. skoða beitaratferli sauðfjár í sumarhögum og fylgjast með því hvort gróður þróist með mismunandi hætti á beittu og friðuðu land.

© GróLind. Land og skógur 2025 | Gunnarsholti | 851 Hella | Sími 570 5550 | landogskogur@landogskogur.is